Hugleiðsla, Cranio og heilun
fyrir meiri ró og tengingu
Ég hjálpa þér að hægja á, hlusta inn á við
og styðja við jafnvægi líkama og huga.
Velkomin í Ljóshof
Ég er Lilja Guðjónsdóttir, stofnandi Ljóshofs
Áhugi minn á líkama og huga hefur fylgt mér lengi. Jóga kom inn í líf mitt árið 2001 og síðan þá hef ég haldið áfram að læra, þroskast og kanna leiðir til meiri vellíðanar, léttleika og gleði.
Í dag starfa ég sem Höfuðbeina- og spjalhryggjarmeðferðaraðili og heilari og býð upp á Cranio-meðferðir og heilun með skilaboðum. Einnig býð ég upp á hugleiðslur á netinu, sem þú getur nálgast hvenær sem þér hentar.
Hugleiðsla hefur verið mikilvægur hluti af minni eigin vegferð. Hún hefur hjálpað mér að hægja á, finna skýrleika og tengjast sjálfri mér – og það er það sem ég vil deila áfram.
Þú þarft ekki að kunna neitt fyrir. Þú mátt mæta nákvæmlega þar sem þú ert.
Hlakka til að taka á móti þér eins og þú ert í dag.
Meira um mig
Hugleiðslur og meðferðir
Hugleiðsla fyrir byrjendur
Hugleiðsla fyrir byrjendur er 6 vikna netnámskeið fyrir þig sem vilt læra undirstöðurnar og byggja upp reglulega hugleiðsluiðkun – án þess að hafa neina reynslu.
Hugleiðslusafn Ljóshofs
- Aðgang að efninu hvenær sem þér hentar.
- Mánaðaráskrift: 4.900 kr.
- Ársaðild: 49.000 kr.
Tengstu þínu innra – þegar þér hentar.
Heildrænar meðferðir
- Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð.
- Heilun með skilaboðum.
Báðar meðferðirnar geta stutt við slökun og hjálpað líkamanum að róa taugakerfið.
Umsögn
"Fór til Lilju í Cranio vegna mikilla verkja í kjálka,
af völdum spennu og álags. Eftir tvær meðferðir
gat ég hætt að nota verkjalyf! Mæli 100% með
til að losa um spennu og verki í líkama.”
Helga
Umsögn
"Ég er búin að fara í sex tíma í Cranio hjá henni Lilju. Er búin að upplifa svo jákvæðar breytingar á líkama og huga, þegar ég fór í fyrsta tímann vissi ég ekki hvað ég væri að fara í. Fyrsti tíminn var magnaður, annar tíminn bara fín slökun en síðan hefur verið eitthvað magnað í hverjum tíma. Mæli hiklaust með að fara í tíma hjá Lilju"
Valdís
Vertu með á póstlistanum
Fréttir, fróðleikur og innblástur sem hjálpa þér að staldra við og tengjast þínu innra